Ofbeldi

Ofbeldi

Ofbeldi er ALDREI á ábyrgð þolanda

Gerandi ber ALLTAF ábyrgð á gjörðum sínum

Mundu að þú gekkst í gegnum nánast óbærilega reynslu og lifðir hana af. Það þýðir að þú búir yfir ótrúlegum styrk og hafðu það hugfast allan tímann. Allar tilfinningar þínar og allar þessar afleiðingar eru eðlileg viðbrögð við óeðlilegum aðstæðum.

Lestu meira hér um eðlilegar afleiðingar kynferðisofbeldis 

Er ég þolandi kynferðisofbeldis?

Ef einhver þvingar þig til að gera eitthvað kynferðislegt er það kynferðisofbeldi. Það getur verið allt frá snertingu kynfæra yfir í samfarir. Ef einhver áreitir þig kynferðislega með orðum er það líka kynferðisofbeldi.

Það skiptir engu þótt sá sem beitir ofbeldinu sé maki þinn, það er samt ofbeldi. Flestir sem verða fyrir kynferðislegu ofbeldi þekkja þann sem beitti því.​

Dæmi um kynferðisofbeldi er:

  • Kossar eða snerting gegn vilja þínum.
  • Kynferðisleg orð eða látbragð gegn vilja þínum.
  • Samfarir eða kynferðislegar athafnir þegar þú getur ekki sagt nei. Til dæmis af því að þú ert undir áhrifum áfengis/efna eða sofandi.
  • Að neita að nota smokk eða taka hann af án þess að láta þig vita.
  • Að hæðast að þér eða ógna ef þú vilt ekki gera eitthvað tengt kynlífi. Til dæmis að horfa á klám eða bjóða öðrum með í kynlífið.
  • Að hóta að sýna öðrum nektar- eða kynlífsmyndir af þér, til dæmis til að fá þig til að láta af hendi peninga eða neyða þig til að gera eitthvað kynferðislegt.
  • Að þrýsta á þig að senda sér nektarmyndir af þér.
  • Að senda nektarmyndir til þín þótt þú viljir það ekki.
  • Nauðgun eða tilraun til nauðgunar.

Er ég gerandi kynferðislegs ofbeldis?

Kynferðisofbeldi er skilgreint sem svo að þú hefur farið yfir mörk hins aðilans. 

Þú ert ekki að virða mörk ef þú:

  • Setur pressu á makann um að gera hluti sem hann langar ekki til eða kemur inn samviskubiti hjá honum.
  • Lætur makanum líða eins og hann skuldi þér kynlíf, t.d. af því þú gafst honum gjöf, bauðst á deit eða gerðir honum greiða.
  • Bregst illa við (reiði, leiði eða gremja) þegar makinn segir nei við einhverju eða veitir ekki samþykki sitt samstundis.
  • Hunsar tjáð mörk eða önnur líkamleg merki þess að samþykki sé ekki til staðar (t.d. ef hinn aðilinn færir sig undan eða ýtir þér frá sér). Athugaðu að hægt er að draga samþykki fyrir kynlífi til baka á hvaða tímapunkti sem er, þótt viðkomandi hafi gefið leyfi fyrir því áður.
  • Reynir eða ferð alla leið í að stunda kynferðislegar athafnir með manneskju sem hefur ekki gefið leyfi eða hefur hreint út sagt nei. 
  • Stundar samfarir eða gerir kynferðislega hluti við einstakling sem er ekki með meðvitund vegna áfengis eða er sofandi

Hvert get ég leitað?

Neyðarlínan

Neyðarlínan getur beint þér á sérstaka bráðamóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis. Þar er alltaf opið og það kostar ekkert að fara þangað.

Á Neyðarmóttökunni vinna hjúkrunarfræðingar, sálfræðingar og læknar sem geta hjálpað andlega og líkamlega. Þar er líka hægt að fá aðstoð lögfræðings eða réttargæslumanns.

Sönnunargögnum er safnað sem hægt er að nýta ef þú ákveður að kæra. Til að auka líkurnar á að finna sönnunargögn er mikilvægt að koma eins fljótt og hægt er og ekki þvo þér eða fötin þín áður en þú mætir.

Hér má finna upplýsingar um úrræði fyrir þau sem hafa orðið fyrir ofbeldi land allt.

Einnig má finna upplýsingar um réttarkerfið, svo sem hvað gerist ef þú vilt kæra brot sem þú hefur orðið fyrir og hvernig það virkar hér.

s. 112 eða 543 1000

Netfang: neydarmottaka@landspitali.is

Lesa meira á síðu Landspítala.

Lesa meira á síðu Neyðarlínu.

Stígamót

Stígamót bjóða upp á viðtöl og sjálfshjálparhópa fyrir fólk sem hefur verið beitt kynferðisofbeldi. Það skiptir ekki máli þótt ofbeldið hafi átt sér stað fyrir löngu síðan, það er alltaf hægt að koma til Stígamóta og það kostar ekkert. Einnig er í boði ráðgjöf fyrir aðstandendur.

Þú getur valið um karlkyns eða kvenkyns ráðgjafa. Á heimasíðunni má einnig finna rafræna ráðgjöf þar sem ráðgjafi er við á opnunartíma.

Stígamót taka ekki á móti börnum og unglingum undir 18 ára þar sem barnavernd sveitarfélaganna sér um aðstoð og þjónustu við þennan hóp. Undantekingu er hægt er að gera ef þú ert yngri en 18 ára ef málið þitt er nú þegar þekkt í barnaverndarkerfinu.

Hægt er að nýta sér rafræna ráðgjöf þrátt fyrir aldur en best er alltaf að málið komist á borð barnaverndar. 

s. 562 6868

Netfang: stigamot@stigamot.is

Lesa meira

Sjúkást - Sjúktspjall

Sjúkást er vefsíða sem Stígamót heldur úti. Þar má finna ýmsar upplýsingar um sambönd, bæði heilbrigð og óheilbrigð og um ofbeldi í samböndum. Á síðunni er einnig hægt að taka sambandspróf til að kanna hvernig sambandi maður er í.

Á vefsíðunni er netspjall sem heitir Sjúktspjall. Sjúktspjall er nafnlaust netspjall fyrir ungmenni til að ræða meðal annars áhyggjur af samböndum sínum, samskiptum eða ofbeldi. Spjallið er fyrir ungmenni yngri en 20 ára af öllum kynjum.

Á spjallinu talar þú við Sjúkást ráðgjafa sem eru þjálfaðir af Stígamótum og geta veitt aðstoð, stuðning og upplýsingar um ýmislegt sem tengist samskiptum og ofbeldi. Þú kemur inn í spjallið á eigin forsendum og þarft ekki að gefa upp nafn eða aðrar persónuupplýsingar.

Það skiptir ekki máli hvort ofbeldið eða óheilbrigðu samskiptin áttu sér stað nýlega eða fyrir löngu síðan. Ekkert er of smávægilegt fyrir spjallið. Markmiðið er að hjálpa þér að skilja hvað gerðist, að þér líði betur og fáir stuðning við að taka næstu skref.

Spjallið er opið: mánudaga - miðvikudaga kl. 20-22.

Lesa meira

1717 - Hjálparsími Rauða Krossins

Þú getur hringt í símanúmerið 1717 eða talað gegnum netspjallið ef þú vilt tala við einhvern. Hægt er að hafa samband vegna alls þess sem þér liggur á hjarta. Þú getur fengið sálrænan stuðning, ráðgjöf, hlustun og upplýsingar. Bæði síminn og netspjallið er ókeypis. Ekki er þörf fyrir að koma fram undir nafni.

s. 1717

Lesa meira

Heimilisfriður - fyrir gerendur ofbeldis

Ef þú ert yfir 18 ára og beitir eða telur þig beita ofbeldi færðu hjálp hjá Heimilisfriði. Hjá Heimilisfriði er tekið á móti öllum þeim sem telja sig þurfa aðstoð til þess að hætta að beita maka sinn ofbeldi. Heimasíðu Heimilisfriðar má nálgast hér með öllum helstu upplýsingum.

s. 555 3020

Netfang: heimilisfridur@shb9.is

Lesa meira

Taktu skrefið - hópur sálfræðinga

Taktu skrefið er hópur sálfræðinga sem aðstoða fólk sem hefur áhyggjur af kynferðislegri hegðun sinni eða hefur beitt kynferðisofbeldi. Ef þú heldur að það sé mögulegt að þú hafir beitt einhvern kynferðislegu ofbeldi, ef þú hefur áhyggjur af kynferðislegri hegðun þinni eða hefur fengið athugasemdir um vafasama hegðun eða áreitni, fáðu hjálp til að breyta því.​

Netfang: taktuskrefid@taktuskrefid.is

Lesa meira

Þín heilsugæsla eða persónulegur sálfræðingur

Það er mikilvægt að byrgja ekki inni ef þú hefur orðið fyrir ofbeldi. Ef þú treystir þér ekki í úrræðin hér að ofan þá er góð byrjun að tala við einhvern sem þú treystir - fjölskyldu, kennara, vin, lækni, sálfræðing.

Lesa meira