top of page

HVAÐA GETNAÐARVÖRN HENTAR ÞÉR?

Til eru margar tegundir af getnaðarvörnum. Getnaðarvarnir geta verið með eða án hormóna.  Við val á getnaðarvörn er mikilvægt velta fyrir sér kostum og göllum hverrar tegundar. Svo er líka gott að hafa í huga að það sem hentar einum einstakling hentar ekki endilega öðrum. 

Flettu í gegn hér að neðan til að skoða hvað gæti hentað þér!

Marble Surface

Án hormóna. Þarf að nota nýjan fyrir hvert skipti. Engar aukaverkanir. Auðvelt að kaupa. Vörn gegn kynsjúkdómum.

SMOKKURINN

Smokkurinn er eina leiðin til að draga úr líkum á kynsjúkdómasmiti sé hann rétt notaður. Til að smokkurinn virki til að draga úr líkum á smiti er nauðsynlegt að nota hann frá byrjun þannig að slímhúðir þeirra sem mök eiga snertist ekki.

 

Alltaf á að nota smokkinn ef um er að ræða samfarir við einstakling sem viðkomandi þekkir lítið eða ekkert. Sem getnaðarvörn virkar hann þannig að hann kemur í veg fyrir að sæðið fari í leggöng við samfarir. 

Smokkurinn fæst víða meðal annars í matvörubúðum, bensínstöðvum og lyfjaverslunum. Hann er til í ýmsum litum, gerðum og brögðum.

Svona gerum við

  1. Heilar umbúðir, ef gat er á umbúðum er smokkurinn ónýtur.

  2. Kanna dagsetningu á umbúðum, útrunninn smokkur er lítil vörn.

  3. Umbúðir opnaðar varlega.  Gott að ýta smokknum örlítið til hliðar og rífa umbúðirnar við hornið.  Ekki nota tennur eða neglur til að ná smokknum úr umbúðunum þar sem gat gæti komið á hann.

  4. Smokkurinn er upprúllaður þegar hann kemur úr pakkanum.  Ef hann lítur út eins og hattur þá snýr hann rétt.

  5. Smokknum er rúllað upp á stinnt/hart typpið fyrir kynmök. Smokkurinn fyrst, snerting svo.

  6. Totan fremst á smokknum tekur við sæðinu.  Takið með vísifingri og þumli um totuna og haldið fingrunum þar á meðan smokknum er rúllað upp á typpið.  Munið að smokkurinn er þunnur og langar neglur geta auðveldlega gert gat á hann.

  7. Losa loft út með því að strjúka með annarri hendi upp eftir typpi.

  8. Þegar kynmökum er lokið þarf að taka typpi sem fyrst úr leggöngum annars er hætta á að smokkur detti af.  Best er að halda við neðri hluta smokksins þegar typpi er dregið út.

  9. Smokkurinn er tekinn varlega af, bundinn hnútur á hann og honum hent í rusl.

  10. Alltaf á að nota nýjan smokk við hver kynmök.

Image by Reproductive Health Supplies Co

Latex ofnæmi?

Það er hægt að fá latex fría smokka!

smokkur

PILLAN

Pillan er til af tveimur gerðum.

  • Önnur tegundin inniheldur 2 hormón, estrógen og gestagen. Til eru margar mismunandi samsetningar og sumir þurfa að prófa ólíkar pillur til að finna þá sem hentar

  • Hin hefur bara eitt hormón, gestagen, og er kölluð minipillan

 
Öryggi

Pillan er mjög örugg getnaðarvörn þegar hún er tekin reglulega samkvæmt leiðbeiningum. Í tilraunum hafa samsettu pillurnar komið betur út en minipillan varðandi árangur gegn þungun en við notkun í daglegu lífi er enginn munur.  

Áhætta

Áhætta af notkun pillunnar hefur verið skoðuð og eru til rannsóknir sem sýna mælanlega aukningu á sumu krabbameini en minnkun á öðru.
Önnur alvarleg áhætta tengd samsettu pillunni er blóðtappi og er smá munur milli tegunda. Þeir sem reykja eða eru í yfirþyngd eru í aukinni áhættu að fá blóðtappa.

Önnur notkun pillunnar

Pillan er stundum notuð sem lyf eða í tvennum tilgangi þ.e. sem lyf og sem getnaðarvörn og er þar helst átt við meðferð við miklum tíðaverkjum eða miklum tíðablæðingum því pillan dregur úr hvoru tveggja. Eins er pillan notuð við sumum sjúkdómum eins og slímhimnuflakki

Contraceptive%20pills%20blister_edited.j

Lesið alltaf lyseðla með öllum lyfjum eða ræðið við heilbrigðisstarfsmann

pillan

HRINGURINN

Hormónahringurinn er grannur plasthringur sem er 5 cm í þvermál. Hann inniheldur hormónin estrógen og gestagen.

Við fyrstu notkun er hringnum komið fyrir í leggöngum eftir blæðingar og hann er hafður þar í 3 vikur. Þá er hann fjarlægður og nýr hringur settur upp eftir eina viku. Hver hringur endist í 3 vikur.

Plasthringurinn er frekar mjúkur og auðvelt að koma honum fyrir. Afar sjaldan þarf að taka hann út fyrir kynmök.

Helstu kostir hringsins

  • Örugg getnaðarvörn (+99%)

  • Ekki þarf að muna eftir honum daglega

  • Blæðingastjórnun er góð og milliblæðingar sjaldgæfar

  • Aukaverkanir litlar

  • Mun minna hormónamagn en í pillunni

Vegna umhverfisáhrifa á ekki að henda notuðum hring í heimilissorp heldur fara með þá í apótek í förgun eins og öðrum lyfjum.

Lesið alltaf lyseðla með öllum lyfjum eða ræðið við heilbrigðisstarfsmann

Image by Reproductive Health Supplies Co
hringur
sprautan

SPRAUTAN

Sprautan er í formi stungulyfs og inniheldur hormónið gestagen. Hún er gefin í vöðva á 3 mánaða fresti (8-12 vikur).

 

Hjúkrunarfræðingur á heilsugæslunni getur gefið sprautuna eða hægt er að nota hana heima ef fólk treystir sér til.

Aðalkostir sprautunnar

  • Örugg getnaðarvörn (+99%)

  • Ekki þarf að muna eftir getnaðarvörn daglega

  • Henni fylgir oftast blæðingaleysi sem mörgum finnst ákjósanlegt. Blæðingaleysið hefur engar hættur í för með sér.  

Ef hætt er á sprautunni þarf að reikna með að eftir síðustu gjöf endast áhrif í 3-6 mánuði. 

Aukaverkanir

Mjög algengar aukaverkanir (geta komið fyrir hjá fleiri en 1 af hverjum 10 sjúklingum):

  • Þyngdaraukning, þyngdartap.

  • Höfuðverkur

  • Taugaveiklun

  • Óþægindi í kvið, kviðverkir.

Lesið alltaf lyseðla með öllum lyfjum eða ræðið við heilbrigðisstarfsmann

Drug and Syringe

Algengar aukaverkanir (geta komið fyrir hjá allt að 1 af hverjum 10 sjúklingum):

  • Þunglyndi. Getur orðið alvarleg aukaverkun hjá sumum. Ræðið við lækninn.

  • Minnkuð kynhvöt.

  • Sundl/svimi.

  • Æðahnútar.

  • Ógleði, uppköst.

  • Hármissir, óhrein húð/þrymlabólur (bólur), útbrot.

  • Bakverkur.

  • Spenna í brjóstum, aukin hvít útferð frá leggöngum, tíðaverkir.

  • Þróttleysi og slappleiki.

  • Þyngdaraukning, mæði, þroti í fótum og fótleggjum vegna vökvasöfnunar í líkamanum. Ræðið við lækninn.

PLÁSTURINN

Hormónaplásturinn inniheldur hormónin estrógen og gestagen. Í plástrinum er forðalyf sem endist í 1 viku.

Við fyrstu notkun er plástrinum komið fyrir á handlegg, öxl eða öðrum góðum stað á líkamanum eftir blæðingar. Að viku liðinni er skipt um plástur. Svo er aftur skipt eftir viku (samtals 3 vikur með plástur) 4. vikan er án plásturs til að fá blæðingar. Hægt er að nota plástra allar vikur og stöðva blæðingar. 

Helstu kostir plástursins

  • Örugg getnaðarvörn 

  • Ekki þarf að muna eftir honum daglega

  • Litlar aukaverkanir

Vegna umhverfisáhrifa á ekki að henda notuðum plástrum í heimilissorp heldur fara með þá í apótek í förgun eins og öðrum lyfjum.

Algengustu aukaverkanir

  • Höfuðverkur

  • Ógleði

  • Eymsli í brjóstum

Aukaverkanir sem geta komið fram í byrjun meðferðar hverfa venjulega eftir fyrstu þrjá meðferðarhringina þ.m.t. blettablæðingar, viðkvæmni í brjóstum og ógleði.

Image by Reproductive Health Supplies Co

Lesið alltaf lyseðla með öllum lyfjum eða ræðið við heilbrigðisstarfsmann

plástur
lykkja

LYKKJAN

Lykkja er lítill T laga plasthlutur sem læknir eða ljósmóðir kemur fyrir inni í leginu. Mælt er með ómskoðun fyrir og eftir uppsetningu til að meta legið og staðsetningu lykkjunnar.

Læknir þarf að fjarlægja lykkjuna og má gera það hvenær sem er eftir uppsetningu. 

Hormónalykkja

Á lykkjunni er lítið hormónahylki sem gefur frá sér örlítinn skammt af hormónum jafnt og þétt. Hormónalykkjan inniheldur hormónið gestagen.

Hérlendis eru mest notaðar þrjár gerðir hormónalykkja

  • Mirena endist í 8 ár sem getnaðarvörn en 5 ár ef hún er notuð gegn miklum tíðablæðingum.

  • Jaydess endist í 3 ár sem getnaðarvörn. Er aðeins minni lykkja en Mirena.

  • Kyleena endist í 5 ár sem getnaðarvörn. Er jafnstór og Jaydess.

Helstu kostir homónalykkju

  • Örugg getnaðarvörn (+99%)

  • Þarf ekki að muna eftir daglegri notkun

  • Blæðingar minnka eða hverfa alveg sem mörgum konum finnst ákjósanlegt

  • Aðeins staðbundin verkun

  • Minna magn hormóna en í öðrum hormónagetnaðarvörnum

  • Virkar strax eftir uppsetningu

  • Áhrif lykkju og hormóna hindra þungun. Hormónalykkjan ver bæði fyrir þungun í legi og utan þess. 

Helstu aukaverkanir
  • Algengastar eru milliblæðingar í byrjun

  • Þyngdaraukning

  • Bólur á húð

  • Blóðtappahætta er afar lítil

Lesið alltaf lyseðla með öllum lyfjum eða ræðið við heilbrigðisstarfsmann

lykkjan.jpeg

Koparlykkja

Koparlykkjan er úr plasti og örlitlum kopar sem er til þess að auka áhrifin. Lykkjan er mjög smár T laga hlutur  sem læknir kemur fyrir inni í leginu. Þar  hefur hún áhrif til að koma í veg fyrir þungun en hefur engin önnur áhrif á líkamann. Mælt er með ómskoðun fyrir og eftir uppsetningu til að meta legið og staðsetningu lykkjunnar. Lykkjuna má hafa þann tíma sem þarf á vörn að halda eða allt upp í 10 ár.  

Helstu kostir koparlykkju

  • Örugg getnaðarvörn (+99%)

  • Lykkjan veitir vörn þar sem hún er þ.e. í leginu og er því ekki virk til að koma í veg fyrir þungun utan legs þ.e. utanlegsfóstur. 

  • Gleymist ekki

  • Hefur ekki áhrif á hormónastarfssemi líkamans

Aukaverkanir
Auknar blæðingar eru algengasta aukaverkunin því hentar koparlykkjan síst þeim sem hafa miklar blæðingar. 

STAFUR

STAFURINN

Hormónastafur inniheldur hormónið gestagen og er lyfið í litlum plaststaf sem læknir kemur fyrir undir húðinni á upphandleggnum. Hægt er að finna stafinn undir húðinni en hann sést ekki.

 

Hver stafur endist í 3 ár en læknir getur fjarlægt hann hvenær sem er. Húðin er staðdeyfð bæði þegar stafnum er komið fyrir og hann fjarlægður.

Aðalkostir stafsins

  • Örugg getnaðarvörn (+99%)

  • Ekki þarf að muna eftir getnaðarvörn daglega

  • Honum fylgir oftast blæðingaleysi sem mörgum finnst ákjósanlegt. Blæðingaleysið hefur engar hættur í för með sér.  

 

Þegar stafurinn er fjarlægður fara áhrifin strax úr líkamanum. 

Algengar aukaverkanir

  • Þrymlabólur

  • Höfuðverkur

  • Þyngdaraukning

  • Eymsli og verkir í brjóstum

  • Óreglulegar blæðingar

  • Sýking í leggöngum.

Lesið alltaf lyseðla með öllum lyfjum eða ræðið við heilbrigðisstarfsmann

bottom of page