Herpes

Ef maður er með herpes og fer í sund smitast þá öll laugin?

Nei, til að byrja með eru veirur ekki mjög lífsþolnar einingar. Þær þola ekki þurrk, breytingar á hitastigi og alls ekki klór. Flestum veirum líður best í umhverfi nálægt frumum líkamans og deyja ef þær eru komnar úr því. Þó er mismunur á milli veira hvað þær þola. Kvefveirur þola mun meira en herpesveirur enda eru þær líka mun meira smitandi.

Hvað getur maður verið með herpes lengi áður en einkennin koma í ljós?

Einkenna verður yfirleitt vart 4 - 7 dögum eftir smit. Í sumum tilfellum eru einkennin væg eða engin. Í öðrum tilfellum fylgir hár hiti, vöðvaverkir og höfuðverkir ásamt brennandi sviða á kynfærunum og við endaþarmsopið.

Getur herpes 1 breyst í herpes 2?

Herpes 1 og herpes 2 eru nöfn á tveimur mismunandi tegundum af veirum. Þær eru af sama flokki veira (herpesflokknum) en eru svolítið mismunandi og því skýrðar 1 og 2 til aðgreiningar. Þær geta ekki breyst hvor í aðra ekki frekar en karl getur breyst í konu. Þær hafa uppáhaldsstaði; númer 1 vill vera í kringum munn og í andliti, númer 2 vill vera neðan mittis. Þó getur númer 1 sýkt neðan mittis og númer 2 verið í andliti. Þetta útskýrir það að einföld frunsa getur valdið kynfæraherpes smitist hún frá munni í kynfæri við munnmök.

Hvað líður langur tími þar til að maður getur verið fullviss um að herpes sé ekki í líkamanum?

Talið er að allt að 80% fullorðinna séu með týpu 1 veiruna í sér, jafnvel þótt þeir hafi aldrei fengið frunsu. Þetta er fundið út með mótefnamælingum. Þá er í stuttu máli sagt athugað hvort ónæmiskerfið hafi einhvern tíman komist í snertingu við veiruna. Sé mælingin jákvæð hlýtur veiran að hafa verið/að vera í líkamanum. Það er alltaf einhver hluti smitaðra sem aldrei fær nein einkenni og eru því jákvæðir án þess að vera veikir. Gott er að miða við að flest einkenni kynsjúkdóma eru komin fram á 6 mánuðum, sumir fá aldrei einkenni og sumir fá einkenni seinna. Það er því ekki hægt að gefa neitt fullnaðarsvar við þessari spurningu.

Getur það skaðað brjóstabarn af móðirin hefur nýlega fengið kynsjúkdóm eins og til dæmis herpes?

Vissulega geta sumir kynsjúkdómar smitast í gegnum brjóstamjólk t.d. HIV. Herpes veiruna er ekki að finna í slímhúðum brjósta. Hana er aðallega að finna í slímhúðum munns annars vegar og kynfæra hins vegar.

Getur herpes smitast án samfara t.d. óhrein rúmföt eða þess háttar?

Herpes smitast við snertingu slímhúða og ef vessi úr herpesblöðru berst á svæði húðar sem eru móttækileg fyrir sýkingu, t.d. ef einhver er með sár á fingri og fær vessa í það þá getur komið fram herpessár á fingri. Herpesveiran er ekki harðgerð og þolir ekki þurrt umhverfi, breytingu á hitastigi og þess háttar. Þess vegna lifir hún ekki í rúmfötum og er ekki hægt að smitast af henni af dauðum hlutum.

Getur herpes smitast frá móður til barns við fæðingu?

Já, herpessýkingar frá móður til barns við fæðingu eru vel þekktar, sé kona með kynfæraherpes. Þær eru lífshættulegar fyrir nýburann. Barnið getur fengið herpes heilahimnubólgu sem leiðir oft til dauða eða varanlegs örkumls. Einnig geta komið sýking í augu þess. Mest smithætta er ef konan fær sína fyrstu herpessýkingu á sama tíma og fæðing verður. Til að forðast smit er barn tekið með keisarafæðingu. Það er því nauðsynlegt að láta lækni eða ljósmóður vita á meðgöngu ef um kynfæraherpes er að ræða.

Er hægt að fá herpes í munninn án þess að totta einhvern?

Já herpes 1 veiran sem veldur frunsum á vörum veldur hjá sumum herpessárum inni í munninum. Veiran sú getur smitast með kossum. Getur maðurinn minn verið með herpes án einkenna og getur hann hafa smitað mig? Get ég hafa smitast af fyrri bólfélögum og gengið með sjúkdóminn svona lengi án einkenna? Svarið við báðum spurningum er í rauninni já. Stundum fær fólk einkenni frumsýkingar (getur líkst flensu) en tengir það ekki á nokkurn hátt við Herpes sýkingu. Það fær svo ekki áblástur (frunsur) heldur gengur með veiruna í sér án þess að hafa hugmynd. Það getur hins vegar verið smitandi þó það hafi ekki nein einkenni. Sennilega væri Herpes ekki svona algengt ef það smitaði bara þegar einkenni eru til staðar.

Á síðasta ári vann ég við þrif , get ég hafa smitast af klósettum þar?

Það er ákaflega ólíklegt og held ég að þú getir alveg útilokað það. Herpes smitast ekki af klósettsetum.

Maðurinn minn er með herpes 1 þ.a.s hann fær frunsur á munn inn á milli, getur hann hafa smitað herpes 1 á kynfæri og er hægt að sjá hvort að ég er með herpes 1 eða herpes 2?

Herpes 1 veldur ekki bara varaáblæstri og Herpes 2 veldur ekki bara kynfæraáblæstri. Sennilega er það svona 60% á móti 40%, þ.e. í 60 prósent tilfella er það Herpes 2 sem veldur kynfæraáblæstri og í 40% tilfella er það Herpes1. Þetta er öfugt með varaáblástur. Því smitast Herpes bæði upp og niður við kynlíf óháð því hvaða veira þetta er. Ef þú ert smituð af Herpes 1 þá hefur ónæmiskerfið myndað eitthvað af mótefnum gegn veirunni. Þessi mótefni vernda þig að einhverju leyti fyrir Herpes 2. Því fær fólk ekki eins slæmar frumsýkingar ef það smitast af til dæmis Herpes 2 hafi það mótefnin í sér. Hægt er að rannsaka hvort þú ert með Herpes 1 eða 2 með því að mæla þessi mótefni í blóði. Það er ekki hægt að sjá muninn með berum augum.

Get ég smitað manninn minn og börnin mín af almennri umgengni við þau, t.d með að nota sama klósett, sofa með sömu sæng og kyssa þau góða nótt?

Herpes smitast ekki af klósettum eða með sængurfötum. Þú getur vissulega smitað þau af því að kyssa þau. Líkurnar á að þú smitir þau með því að kyssa þau eru ekki miklar ef þú ert ekki með frunsu og því skaltu alls ekki hætta að kyssa börnin þín.

Hvenær get ég byrjað að stunda kynlíf aftur án þess að eiga það á hættu að smita manninn minn?

Það er ekki til neitt sem heitir öruggt kynlíf. Þið skuluð þó nota smokk þegar þú hefur einkenni og dagana í kring.

Læknirinn minn gaf mér "Aciclovir 200mg" sem ég á að éta 5 sinnum á dag, hversu fljótt virkar lyfið og flýtir það fyrir að sárin grói og ég geti byrjað að stunda kynlíf? Þegar herpes blossar upp aftur þarf ég þá að fara aftur í kjallaraskoðun eða get ég fengið þetta lyf án lyfseðils eða bara með samtali við lækni?

Það styttir tímabilið sem það tekur sárin að gróa. Þeir sem eru með slæmar sýkingar taka lyfið stöðugt sem bælimeðferð. Aðrir eiga það og taka um leið og einkennin byrja á ný. Til þess að þú getir það er ekki nóg að fara til læknis því þú ert þá orðin of sein. Þú þarft að eiga til eitthvað af því til að geta brugðist fljótt við þegar einkennin koma fram. Fólki finnst þetta virka misjafnlega vel og lyfið er alls ekki laust við aukaverkanir. Þú ættir ekki að taka það ef þú ert ennþá með barnið þitt á brjósti, nema það þyki meiri áhætta fyrir barnið að þú fáir Herpes sýkingu á ný.

Þegar herpes blossar upp aftur get ég þá smitað mannin minn við mök, þ.a.s get ég smitað áður en ég tek eftir einkennum?

Eins og ég sagði þá er ekki til neitt sem heitir öruggt kynlíf, en til að lifa öruggara kynlífi ættuð þið að nota smokk þegar einkenni eru til staðar og í nokkra daga á eftir. Flestir finna fyrir einkennum áður en þeir fá útbrot. Það eru þá helst taugastingir sem þeir finna á þeim stöðum sem áblásturinn kemur á.

Get ég á einhvern hátt komið í veg fyrir að einkenni blossi upp, með t.d breyttu mataræði eða líferni, þá hvernig?

Það er með þetta eins og aðra sjúkdóma, fjölbreytt mataræði er af hinu góða. Það sem þú ættir að vara þig á eru ljósabekkirnir. Herpes kann vel við sig í sólarljósi og besta leiðin til að framkalla frunsu er jú að fara í sólbað.

Eykur þessi sjúkdómur líkurnar á öðrum sjúkdómum þarna niðri t.d krabbameini?

Hugsanlega, það eru þó sáralítið. Þetta er ekki eins og kynfæravörtur að því leyti. Þú skalt þó halda áfram að fara reglulega í krabbameinsskoðun.

Ég hef lesið mér til um að þetta veiki ónæmiskerfið fyrir HIV, get ég smitast af HIV við annað en kynmök?

Það er rétt að það eru auknar líkur á HIV smiti sé fólk smitað af öðrum kynsjúkdómi. Það gerist þó þannig að það er sár á slímhúðinni í t.d. leggöngunum þar sem HIV veiran á auðveldara með að komast inn. Því má segja að það aukast líkurnar á HIV smiti við kynmök en ekki annað - og þá þarf sá sem þú sefur hjá að sjálfsögðu að vera HIV smitaður.