Kynfæravörtur
Miðvikudagur, 18. Ágúst 2010 22:48
Valda vörtur á kynfærum miklum kláða? Líka vörturnar sem eru flatar?
Aðaleinkenni kynfæravörtusmits eru vörtur á kynfærunum og/eða í kringum endaþarmsop. Vörturnar geta verið eins og blómkál í útliti eða verið flatar. Vörtunum fylgir stundum en ekki alltaf erting í slímhúðinni sem kemur fram sem kláði. Kláðatilfinning er líkt og sársauki einstaklingsbundin tilfinning og er mjög mismunandi. Sumir finna ekki fyrir neinum kláða aðrir eru viðþolslausir.
| < Fyrri grein | Næsta grein > |
|---|




