HIV/alnæmi
Miðvikudagur, 18. Ágúst 2010 22:44
Hvað þýðir HIV?
Það er skammstöfun á Human Immunodeficiency Virus sem er læknisfræðilega nafnið á veirunni sem veldur alnæmi. Lauslega þýtt yrði það "Ónæmisbælandi veira í mönnum"
Getur alnæmi smitast til ófæddra barna í móðurkviði?
Börn geta smitast af sýktri móður í móðurkviði, í fæðingu og með brjóstamjólk. Séu mæður á lyfjum gegn alnæmisveirunni þá minnkar það verulega líkur á að veiran smitist til barns. Yfirleitt er mælst gegn brjóstagjöf til að forðast smit. Sé farið eftir þessu eru líkurnar orðnar frekar litlar að barnið smitist.
Getur HIV smitast með munnmökum?
Þó að kynmök í endaþarm og leggöng séu miklu áhættusamari en munnmök vegna HIV smits, þá er ekki útilokað að hægt sé að smitast með munnmökum.Þættir sem geta haft áhrif þar á eru magn og styrkur líkamsvessa sem skipst er á, tilvist annarra kynsjúkdóma, sár og skurðir í munni, og tíminn sem munnmökin taka.Það er sem sagt smá fræðilegur möguleiki á smiti með munnmökum en það er ekki vitað um neitt slíkt tilfelli.
Smitast HIV í gegnum rassinn?
Já, vissulega. HIV smit getur orðið við endaþarmssamfarir sé ekki notaður smokkur. Slímhúðin í endaþarminum er viðkvæm og rofnar auðveldlega og á því veiran greiða leið inn í blóðrásina. Raunar er meiri smithætta við endaþarmsmök en leggangamök.
Hversu lengi getur maður lifað ef maður er með HIV?
Mjög mismunandi milli einstaklinga. Í raun er það ekki veiran sjálf sem veldur andláti. Veiran sýkir ónæmiskerfið og veikir það smátt og smátt með tímanum. Þegar ónæmiskerfið er orðið verulega skert er talað um að sjúklingurinn sé kominn með Alnæmi. Það eru svo aðrar sýkingar svo sem lungnabólga eða blóðsýking sem draga einstaklinginn til dauða. Heilbrigt ónæmiskerfi ræður við svona sýkingar en ekki hjá alnæmissjúklingum. Algengt er að lifa í 10 ár án meðferðar. Meðferðin er tiltölulega ný að ekki er enn vitað hverjar lífslíkur eru á langtímameðferð. Það sem komið er gefur þó tilefni til bjartsýni.
Hvað er maður lengi að fá niðurstöður úr HIV prófi?
Það tekur nokkrar vikur frá því að smit verður þar til hægt er að mæla hvort að einstaklingur sé í raun HIV-smitaður. HIV- próf er gert á blóðprufu sem dregin hefur verið úr bláæð. Veiran sjálfu er ekki fundin heldur eru mæld mótefni gegn henni. Það þýðir í raun að athugað er hvort líkaminn er að reyna að vinna á sjúkdómnum. Svarið kemur eftir nokkra daga, oftast innan við viku.
Af hverju er algengara að gagnkynhneigðir fái HIV en samkynhneigðir?
Árið 1981 veiktust fyrstu sjúklingarnir í Los Angeles í Bandaríkjunum. Í fyrstu var ekkert vitað hvað var að þeim en einkennin voru svipuð og þeir áttu það sameiginlegt að vera samkynhneigðir. Því var sjúkdómurinn í upphafi stimplaður sem hommasjúkdómur, en á þeim 20 árum sem liðin eru hefur þekkingin margfaldast. Við vitum nú að sjúkdómurinn smitar jafnt samkynhneigða og gagnkynhneigða, jafnt konur sem karla. Ástæðan fyrir því að gagnkynhneigðir einstaklingar á aldrinum 18 - 25 ára eru í mestri áhættu, er einfaldlega sú að þetta er sá hópur sem oftast stundar áhættuhegðun. Áhættuhegðun er að skipta oft um rekkjunauta, nota ekki smokk og neyta fíkniefna í æð. Samfélag samkynhneigðra hefur beitt öflugum forvörnum með áherslu á aukna smokkanotkun og minni áhættuhegðun, auk þess sem þetta er ekki fjölmennur hópur. Að minnsta kosti er gagnkynhneigði hópurinn margfalt fjölmennari.
| < Fyrri grein | Næsta grein > |
|---|




