Smokkaherferð
Apríl 2011
Nú stendur Smokkaherferðin 2011 yfir!
Ástráður er stoltur af því að taka þátt í þessu þarfa átaki. Herferðin hefur það markmið að vekja athygli á og umræðu um smokkinn og mikilvægi hans.
Fylgist með og like-ið facebook síðu herferðarinnar: facebook.com/smokkur
Plakötin má sjá á opinberum stöðum (t.d. í sundlaugum, heilsugæslustöðvum og skólum) um land allt!

Nóvember 2010
Á næstunni hrindir Ástráður og félagið Smokkur - sjálfsögð skynsemi úr vör heljarinnar smokkaherferð innblásinni af þeirri sem margir muna eftir frá 1986. Herferðin sú vakti mikla athygli og kom notkun smokksins inn í umræðuna þegar alnæmisfaraldurinn var í algleymingi.
Um hundrað þjóðþekktir einstaklingar hafa gefið tíma sinn og setið fyrir á myndum og myndbandi. Gaman er að geta þess að margir þeirra voru með á plakötunum frá '86 og endurtaka því leikinn nú.
Átakið, sem ber yfirskriftina Smokkurinn má ekki vera feimnismál, mun helst birtast almenningi á formi veggspjalda og auglýsinga í sjónvarpi auk þess sem skipuleggjendur vona að umræða aukist um mikilvægi þess að sporna gegn kynsjúkdómum og ótímabærum þungunum.
Ástráður hvetur því alla til að fylgjast með!
Umfjöllun fjölmiðla:
Ísland í dag - DV - Vísir
Hér að neðan má sjá plakötin frá 1986. Smellið til að sjá þau í fullri stærð.

