Flatlús
Miðvikudagur, 18. Ágúst 2010 23:27

Flatlús (Phthirus pubis) er í raun ekki kynsjúkdómur heldur sníkjudýr sem lifir á mönnum. Hún er gulgrá að lit, 2-3 mm að stærð og sést með berum augum. Lúsin er mjög flöt og líkist krabbadýri í smækkaðri mynd.
Algengi
Sjaldgæft hérlendis - 5 tilfelli árið 2002.
Smitleiðir
Flatlús smitar helst við nána snertingu, s.s. við kynmök Flatlús getur einnig borist af nærfötum og sængurfatnaði sé ekki þvegið nægilega vel. Smit getur einnig átt sér stað á sólbaðsstofum ef bekkir eru ekki vel þrifnir.
Einkenni
Þegar lúsin sýgur blóð ertist húðin. Þetta veldur kláða. Hann er mestur í kringum kynfærin en getur komið á aðra staði þar sem lúsin þrífst, s.s. augnhár og handakrika. Kláðinn kemur oft nokkrum vikum eftir smit. Nitin klekst út á 5-10 dögum en skelin verður eftir og er oft ógerningur að sjá hvort um er að ræða tóma skel eða nit.
Greining og meðferð
Ef flatlús greinist þarf alltaf að athuga hvort um aðra kynsjúkdóma er að ræða hjá viðkomandi og rekkjunautum hans. Flatlús er greind með því að sjá lifandi lús eða nit á hári. Áburður gegn lús og nit er borinn á alla hærða staði nema hársvörð og er síðan þveginn af eftir 12 klukkustundir. Meðferðin er stundum endurtekin eftir eina viku.
Forvarnir
Rannsóknir hafa sýnt að rakstur kynfærahára eyðileggur kjörlendi flatlúsar og getur þannig komið í veg fyrir smit. Þó ber að hafa í huga að raksturinn gerir húðina viðkvæma og auðveldar þannig smit annarra kynsjúkdóma!
| < Fyrri grein | Næsta grein > |
|---|




