HIV og alnæmi

AIDS bordinn

 

 

 

Hvað er HIV?

Human immuno deficiency virus. Veiran ræðst á T-hjálpar frumur og gerir þær óvirkar. Þá minnkar ónæmisviðbragð líkamans og hann verður mun viðkvæmari fyrir sýkingum. 

Algengi

Heimurinn

Nú eru yfir 30 milljónir manna smitaðar af HIV veirunni (í lok 2008: 33,4 milljónir, skv. UNAIDS). Árið 2008 sýktust 2,7 milljónir og 2 milljónir létust. Frá því að alnæmisfaraldurinn hófst hafa um 25 milljónir dáið af völdum sjúkdómsins og hafa því alls nálægt 60 milljónir manna sýkst.

Ísland

Í árslok 2009 höfðu alls 233 tilfelli verið greind; 38 látnir og 61 orðinn það langt leiddur að hafa þróað með sér AIDS. Að meðaltali er ein ný greining í mánuði á Íslandi.

Nýgengi HIV hefur verið með mesta móti árið 2010 en 16 manns hafa greinst það sem af er ári. Nauðsynlegt er að fólk gleymi ekki HIV í umræðu um kynsjúkdóma; hættan á smiti við óvarin kynmök hefur ekki minnkað. Þetta hafa dæmin því miður sannað. 

Áhættuhópar

Fólk sem tekur áhættu í kynlífi og sprautufíklar. Er ekki lengur „homma-sjúkdómur“ eins og var hér áður fyrr; sannast með því að meira en helmingur þeirra sem smitast eru gagnkynhneigðir. ATH! Það er stóraukin tíðni meðal sprautufíkla á Íslandi!

Smitleiðir

Veiran finnst í öllum líkamsvökvum eins og blóði, sæði og píkusafa. Algengustu smitleiðirnar eru kynmök, óhreinar sprautur, götun, tattoo og var áður algengt með blóðgjöfum. Sýkt móðir getur smitað barn sitt í móðurkviði, í fæðingu eða við brjóstagjöf. Smitast EKKI með handabandi, kossum, hnerra, faðmlögum eða í daglegri umgengni. Smitast ekki með vatni eða með matvælum. Smitast heldur ekki með moskítóflugum eða öðrum skordýrum.

Einkenni

Frumsýking: 50-90% með einkenni 2-4 vikum eftir smit. Skyndilega hiti, höfuðverkur, hálssærindi, eitlastækkanir, útbrot, sár í húð og slímhúð, 10% með taugakerfiseinkenni. Þyngdartap og niðurgangur.

Seinna kemurEinkenni vegna fylgisýkinga geta verið margvísleg; fer auðvitað eftir því hver sýkingin er. Alnæmi (AIDS) er svo lokastig HIV sýkingarinnar. Það tekur um 10 ár fyrir HIV smitaðan einstakling að ná þessu lokastigi; en þessi tími hefur lengst mjög mikið með bættri lyfjameðferð. Lyfin hafa bætt líf HIV smitaðra mjög mikið á undanförnum árum.

 

Greining og meðferð

Til að greina HIV þarf að taka blóðprufu. Veiran er greind í blóðsýni nokkrum vikum eftir smit en gluggatímabilið (tíminn þar sem greiningin er ekki örugg) er sífellt að styttast. Mæld eru mótefni í blóði. Hér áður fyrr var lyfjamagnið sem HIV-smitaðir þurftu að taka á hverjum degi gífurlegt, allt að heilli Cocoa Puffs skál. Nú til dags eru lyfjaskammtarnir þó orðnir miklu smærri, jafnvel bara ein tafla á dag.

Horfur

Ólæknanlegur sjúkdómur en hefur í dag mun minni áhrif á daglegt líf heldur en áður vegna mikillar lyfjaþróunar. Fæstir sem taka lyfin þróa með sér alnæmi. Fólk deyr frekar úr tækifærissýkingum og öðrum sjúkdómum sem fylgja heldur en úr alnæmi sem slíku. 

Forvarnir

Smokkurinn er EINA forvörnin gegn HIV!