Trichomoniasis
Síðast uppfært: Sunnudagur, 21. Nóvember 2010 00:23 Þriðjudagur, 10. Febrúar 2009 21:08
Frumdýr (Trichomonas vaginalis) sem getur hreyft sig með svipulaga öngum. Smitar leggöng og þvagrás, jafnvel þvagblöðru kvenna og þvagrás karla.
Algengi
Nokkuð algengt meðal kvenna á aldrinum 16-35 ára og alveg upp í 45 ára aldur. Ekki eins algengt meðal karlmanna og er oft ógreint í þeim.
Áhættuhópar
Fólk með marga rekkjunauta og þeir sem taka áhættur í sínu kynlífi (þ.e. nota ekki smokkinn).
Smitleiðir
Smitast fyrst og fremst við samfarir, en þar sem sníkillinn lifir á röku yfirborði í smá tíma er þó möguleiki á smiti með rökum handklæðum og jafnvel í sundlaugum ef ekki er nægjanlega gætt að klórmagni.
Einkenni
Margir hafa engin einkenni.
Konur geta fundið kláða, brunatilfinningu, roða í leggöngum og á ytri kynfærum. Gjarnan óeðlileg útferð sem er illa lyktandi, tíð/sársaukafull þvaglát, sársauki við samfarir og verkir í kvið. Einkenni versna gjarnan eftir tíðir.
Karlmenn eru yfirleitt einkennalausir. Ef þeir fá einkenni geta þau verið útferð, sársauki við þvaglát eða smá kláði í þvagrás.
Greining og meðferð
Hægt er að leita að dýrinu í útferð úr leggöngum. Í mönnum er tekið strok innan úr þvagrás og leitað að sníklinum. Sýklalyfið Flagyl (metronidazol) er notað með góðum árangri.
Líkaminn sér vanalega sjálfur um að lækna þetta. Fóstur getur smitast á leið í gegnum fæðingarveg.
Forvarnir
Smokkurinn og góðar hreinlætisvenjur.
| < Fyrri grein | Næsta grein > |
|---|




