Lekandi
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 10. Nóvember 2010 21:57 Þriðjudagur, 03. Febrúar 2009 12:57
Bakteríusýking af völdum Neisseria Gonorrhoeae.
Algengi
Lekandi er sjaldgæfur hér á landi. Tilfellum hefur þó verið að fjölga síðastliðin ár, en eitthvað hefur dregið úr þeirri fjölgun (2006 voru tilfellin 20 en 2007 voru þau 6). Lekandi er töluvert algengari kynsjúkdómur í nágrannalöndum okkar, t.d. í Bretlandi, þar sem hann er næst algengasti kynsjúkdómurinn.
Áhættuhópar
Þeir sem eiga marga rekkjunauta. Þeir sem taka áhættu í sínu kynlífi, þ.e. nota ekki smokkinn við samfarir eða munnmök.
Smitleiðir
Smit verður við snertingu slímhúða, oftast við samfarir. Þannig getur sýking orðið annars staðar en á kynfærum, t.d.í endaþarmi, koki og augum, komist bakterían í snertingu við þessa staði.
Einkenni
Einkenni lekanda koma venjulega fram 1-14 dögum eftir smit.
Karlar: Ýmist gulhvít útferð frá lim eða sviði við þvaglát ("pissa rakvélablöðum"), bjúgur og roði. 20% af körlum fá ekki einkenni.
Konur: Graftarkennd útferð frá leghálsi, sviði við þvaglát, kviðverkir, blæðingaróregla. Allt að 50% sýktra kvenna eru einkennalausar og geta því haft sjúkdóminn í langan tíma án þess að hann greinist.
Sýking í endaþarmi ekki óalgeng og einkenni hennar eru meðal annars sviði og útferð.
Greining og meðferð
Þvagsýni eða sýni tekin með strokpinna úr þvagrás eða leghálsi, og einnig sýni úr koki, endaþarmi og augum ef þurfa þykir.
Stutt pensillínmeðferð, eða önnur sýklalyf ef pensillínofnæmi er til staðar.
Ef lekandi er ekki meðhöndlaður getur hann valdið bólgum í eggjaleiðurum og eistum. Þetta getur leitt til ófrjósemi hjá bæði konum og körlum. Einnig getur ómeðhöndluð sýking valdið utanlegsfóstri hjá konum. Bakterían getur borist út í blóð og þannig valdið langvarandi veikindum með hita og jafnvel liðbólgum.
Forvarnir
Eina leiðin til að komast hjá smiti er að nota smokkinn við samfarir, munnmök og endaþarmsmök!
| < Fyrri grein | Næsta grein > |
|---|




