KYNHVÖT í apríl
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 03. Maí 2011 18:33 Þriðjudagur, 03. Maí 2011 18:07
Af og til heldur Ástráður svokallaða KYNHVÖT (Kynningar- og hvatningarkvöld ötulla táningafræðara) til að hvetja læknanema áfram í starfinu og fræða þá um valin málefni.
Síðasta KYNHVÖT var haldin 14. apríl á Háskólatorgi þar sem Einar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri HIV-Ísland, ræddi við okkur um stöðu HIV-mála á Íslandi í dag og Hrafnkell Stefánsson, 6. árs læknanemi, talaði um reynslu sína af starfi á Göngudeild húð- og kynsjúkdóma.
Að lokum voru vegleg verðlaun veitt þeim læknanemum sem duglegastir voru í starfinu í vetur.
|
Einar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri HIV-Ísland. |
|
Hrafnkell Stefánsson, 6. árs læknanemi. |
|
| Helga Þráinsdóttir og Andri Leó Lemarquis, 2. árs læknanemar. |
|
| Margrét Edda Örnólfsdóttir og Elías Sæbjörn Eyþórsson, 2. árs læknanemar. |
| < Fyrri grein | Næsta grein > |
|---|




