Starfsárið 2010-11

Ástráður hefur ekki setið auðum höndum þetta árið frekar en þau fyrri. Starfsárið hefur verið sérstaklega skemmtilegt fyrir okkur læknanemana sem spjöllum við unglingana og vonum við að þeir hafi haft gagn og gaman að fyrirlestrunum.

Starfsárið 2010-11 hélt Ástráður:

  • 156 fyrirlestra í 28 framhaldsskólum vítt og breitt um landið
  • 45 fyrirlestra í 22 grunnskólum og félagsmiðstöðvum
Kortið sýnir staðsetningu fyrirlestranna (smellið til að stækka).

 

 

Við viljum koma á framfæri þökkum til alls þess frábæra fólks sem tekið hefur á móti okkur í vetur og séð til þess að nemendur sínir fengju fræðslu um kynlíf og kynheilbrigði.

-Ástráður