Kynstrin öll

Ástráður vill vekja athygli á borðspilinu Kynstrin öll. Fátt er jafnmikilvægur né jafnumtalaður þáttur í lífi mannsins og kynlífið og hefur Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, kynfræðingur, skapað spil sem hentar jafnt ungum sem öldnum um það málefni. Ástráður hefur nú í áratug sinnt kynfræðslu ungmenna á Íslandi og haft það að markmiði að koma á framfæri upplýsingum og vekja umræður meðal ungs fólks um kynheilbrigði. Kynstrin öll er tilvalið spil til að bæta samskipti og efla umræðu meðal unglinga og einnig á milli unglinga og foreldra. Spilið tengir á skemmtilegan hátt allt milli himins og jarðar sem kemur að almennum kynferðismálum. Spilið er hreint ekki vandræðalegt þar sem það byggist ekki á því að fólk segi frá eigin kynlífsreynslu heldur ræði um kynlíf almennt, hvað getur verið skemmtilegra en það! Spilið er spurningaspil með fimm flokkum; menning, sambönd, kynhegðun, líkaminn og taka sénsinn og oftast er stutt í hláturinn í hverjum flokki. Spilið er fjölfræðilegur upplýsingabanki sem vekur upp skemmtilegar og forvitnilegar umræður jafnt sem rökræður. Spilið er það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.

Kynstrin öll er með sanni fjör í orði og á borði og Ástráður hvetur alla til að kíkja á heimasíðu spilsins: www.kynstrinoll.is

Ástráður hélt spilakvöld fyrr á árinu og hér má sjá dæmi um það sem læknanemar höfðu um spilið að segja:

,,Skemmtilegt og fræðandi spil fyrir ungt fólk á öllum aldri”

„Kynstrin öll er alveg frábært spil! Það er skemmtilegt, fræðandi og býður upp á fjörugar umræður – allt í senn. Spilið er líka svo nýtt og ferskt, öðruvísi en öll hin spilin. Við hlógum mikið og skemmtum okkur konunglega!“

„Kynstrin öll er fyndið og fræðandi spil. Eitthvað sem allir með kynfæri ættu að prófa!“

„Það sem kom mér mest á óvart var hvað spilið skapaði góðan anda fyrir opna og jákvæða umræðu um kynlíf.“

,,Spilið var skemmtilegt og öðruvísi, á góðan hátt. Ég myndi segja að þetta væri í raun fyrir alla, kannski aðallega ungt fólk og örugglega mjög sniðugt fyrir unglinga, til að minnka fordóma og auka skilning á þessu "tabú" máli.”

,,Kynstrin öll er umfram allt skemmtilegt spil, sem fjallar um kynlíf á heilbrigðan hátt.”

,,Kynstrin öll kom mér virkilega á óvart. Ég hef sjaldan haft jafn gaman af borðspili. Spilið vakti skemmtilegar umræður og það var mikið hlegið í hópnum.”

Kveðja, Ástráður