Einkenni kynsjúkdóma

Nýverið var sett upp yfirlit yfir einkenni ýmissa kynsjúkdóma á heimasíðu Landlæknis. Yfirlit sem þetta er ágætt viðmið og ætti að geta auðveldað fólki að átta sig á hvort um kynsjúkdómasmit sé að ræða og það leitað sér lækningar í framhaldi. Hins vegar er aðeins um viðmið að ræða og ef fólk er í vafa ætti það alltaf að leita til læknis.

Tengill á yfirlitið er kominn á síðuna.

 Kveðja, Ástráður