Ástráður fær verðlaun

Ástráður hlaut nú í desember heiðursviðurkenningu Kynfræðifélags Íslands (Kynís, kynis.is) árið 2010 fyrir forvarnarstarf á sviði kynfræði. Kynfræðifélag Íslands hafði verið starfandi í 25 ár í desember s.l. og af því tilefni var ákveðið að fara af stað með heiðursverðlaun sem veitt verða á hverju ári. Félaginu fannst við hæfi að Ástráður yrði fyrsti heiðurshafinn og erum við afar þakklát og stolt af þessari viðurkenningu.

 

Arnar Jan Jónsson, formaður Ástráðs, tekur við viðurkenningunni úr hendi Áslaugar Kristjánsdóttur, formanns Kynís.