Smokkaherferð 2011
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 13. Janúar 2011 15:53 Miðvikudagur, 10. Nóvember 2010 21:03
Um þessar mundir tekur Ástráður þátt í spennandi forvarnarverkefni. Í samstarfi við Jón Þór Þorleifsson framleiðanda, Ingu Dóru Pétursdóttur framkvæmdastýru Unifem á Íslandi og Frímann Sigurðsson ætlum við að endurvekja smokkaherferðina frá 1986. Þá voru ýmsir þekktir einstaklingar fengnir til að vekja athygli á smokknum með auglýsingum í sjónvarpi og á plakötum. Kynsjúkdómum hefur farið fjölgandi síðustu ár og því er full ástæða til að endurvekja þessa herferð og benda á mikilvægi þess að nota smokkinn - alltaf!

Eitt af plakötunum úr herferðinni 1986
| < Fyrri grein | Næsta grein > |
|---|




