Smokkar!

Auk þess að dreifa smokkum til ungs fólks sem hlýtur fræðslu Ástráðs í framhaldsskólum, grunnskólum og félagsmiðstöðvum stendur félagið reglulega fyrir sérstökum smokkadreifingum á ýmsum stórviðburðum. Helst ber þar að nefna menningarnótt, gay pride og útihátíðir um verslunarmannahelgi á borð við Þjóðhátíð í Eyjum og Eina með öllu á Akureyri. Undanfarin ár hefur Durex séð Ástráði fyrir smokkum og kunnum við þeim (Halldóri Jónssyni ehf.) bestu þakkir fyrir það. Árlega dreifir Ástráður smokkum í þúsundatali!

Tíðni kynsjúkdóma er þó enn allt of há svo betur má ef duga skal. Smokkurinn er náttúrlega, eins og alþjóð veit, EINA vörnin gegn kynsjúkdómum. Aðgengi að og verð á smokkum brennur mjög á Ástráði þessi dægrin. Við teljum að báðir þessir þættir þurfi að breytast svo raunverulegur árangur náist í baráttunni gegn kynsjúkdómum og ótímabærum þungunum. Þannig ættu smokkar að vera fáanlegir ókeypis sem víðast og vera auk þess til á hverju heimili! Ástráði finnst tilhugsunin um laglega smokkakrukku í hverjum baðherbergisskáp ómótstæðileg og eitthvað sem íslenskir upplýstir foreldrar ættu að skoða. Smokkurinn er ekkert feimnismál!

 

 Læknanemarnir Theodóra og Hera stóðu smokkadreifingarvaktina á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í sumar og höfðu gaman af.